cannot find server

Blönduós...nafli alheimsins!

09.11.2007 21:15:22 / támína

Tilkynning

Ég hef tekið þá ákvörðun um að færa mig um set.

Hef ég hafið ritstörf á öðrum miðli sem sumir nefna moggablogg.

Slóðin á pistla mína þar er   www.solla-h.blog.is

Líf&Fjör


» 6 hafa sagt sína skoðun

01.11.2007 20:48:14 / támína

foj

Gerði heiðarlega tilraun til að blogga en hvað *púff* horffið sussubíja

Reyni aftur seinna farin að sauma

Líf&Fjör


» 1 hafa sagt sína skoðun

03.06.2007 20:31:54 / támína

orðlaus ... jebb kemur fyrir

Ég er svo aldeilis steinhissa. Mér persónulega finnst mjöööög gott að búa úti á landi og hana nú 

 

Kolbrún Berþórsdóttir
Síðdegisútvarpið á Rás 2
Föstudaginn 25 maí 2007 

Þáttarstjórnandi ræðir nýafstaðnar kosningar við meðal annars Kolbrúnu Berþórsdóttur, þar sem þau velta fyrir sér slöku gengi Framsóknarflokksins og afleyðingar þess. 
Þáttarstjórnandi spyr hvort landsbyggðin þurfi ekki á Framsókn að halda til að tryggja það að einhver flokkur taki sig af þeirra málefnum.

Kolbrún veltir því fyrir sér í örfáar sek.hvort eftirfarandi megi segja í ríkisútvarpið, en kemst að þeirri skoðun að það sé fátt, ja eða ekkert því til fyrir stöðu og segir því: 

"Af hverju ætti stór hluti þjóðarinnar að vilja búa úti á landi, þar sem ekkert er við að vera, engin aþreying. Afskaplega skiljanlegur þessi flótti frá landsbyggðinni. Mjög margir sem líta á það sem hrylling að búa úti á landi í fámenni, en aðrir sem kjósa það verða að sætta sig við einhæfni í atvinnulífi.

Hef fulla samúð með fólkinu á Flateyri, en kvótakerfið á ekki alla sök, það er heldur ekki hægt að byggja upp lítið sjávarpláss á einum atvinnuvegi.

Frábært að fara út á land á jeppanum í sumarhúsið, en ekki myndi ég vilja vera kennari út á landi."

 

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

16.03.2007 12:38:17 / támína

AFTUR!!! og nýbúin!!!!!

var að taka bóklega bílprófið á vís bara svoan að ganni, nema hvað. STELPAN FÉLL!!!! wtf.

Ekki segja nokkrum manni frá þessu!!

Og Hófý systir er komin "á tal" eins og maður segir í sveitinni um rollurnar að vísu. Allavega hún átti settan dag í GÆR. Svo nú er bara að bíða og senda hríðarstrauma :D

                                                                                  Líf&Fjör


» 5 hafa sagt sína skoðun

16.03.2007 12:17:10 / támína

Miðvikudagar eru...

... kitludagar. Ný regla á þessu heimili. Bannað að kítla nema á miðvikudögum. Mér finnst þessi regla ÆÐI !!!! :D  Minns er búin að vera drullu slappur síðan á miðvikudaginn. Ekki spes. Mínum leiðist að vera svona slappur. Verð að deila snilldar sögu af honum syni mínum. Þannig var að síðustu vinnuhelgina mína var hann einn heima á laugardeginum. Um hádegi hringdi ég heim til að tékka á stöðunni. Símtalið var einhvern veginn á þessa leið

Smári: Halló

Ég: Hæ kallinn minn

Smári: MAMMA ÞAÐ ER KÖTTUR INNI HJÁ OKKUR!

Ég: Nú, hvar inni er hann?

Smári: ÉG LOKAÐI HANN INNÍ POTTASKÁP.

Runnu nú á mig tvær grímur, því ég vildi síður að kötturinn færi að míga í pottaskápinn með tilheyrandi ilm. Svo ég leiðbeindi honum hvernig hann ætti að koma kisa út. Kvaddi hann svo og hélt áfram að vinna. Eftir ca 5 mín var kallað á mig í síman. Sú sem svaraði giskaði á að þetta væri catman. Var búin að deila þessu skondna atvikið með stelpunum. Svo ég fer í síman.

Ég: Halló

Smári: MAMMA KÖTTURINN ER AFTUR KOMINN INN!!

Já, það getur verið flókið að vera einn heima og þurfa að verja heimilið fyrir óargadýrum nágrananna. En stubburinn minn er svo duglegur :)

                                                                         Líf&Fjör

 

p.s. þið sem hafið verið að röfla um bloggleti í mér. Sussubíja 2 færslur á þessu ári. Hvað er hægt að biðja um meira?!?! Minns bara spyr.


» 1 hafa sagt sína skoðun

21.02.2007 17:01:58 / támína

IT´S A LIVE!!!

Jú mikið rétt við erum á lífi ... sprell a live :). Slatti að frétta síðan síðast man bara ekki helminginn. Svona er að það að vera blogglatur :D . Allavegana ég er í vetrarfríi þessa viku bara ljúft. Skipti fríinu í tvennt. Tek seinni helminginn þegar skólinn fer íu páskafrí. Hentugt það. Ég, krakkarnir og fórnarlambið fórum í saltkjöt og baunir uppá Mýrar í gær. Ég borðaði óhóflega mikið yfir mig boy oh boy!! Ennn er ekki sprengidagurinn einmitt til þess. :) Svo er það grímuball í kvöld. Smári er einhver ofurhetja sem ég kann ekki að nefna og Anna er blómálfur. Þau eru búin að fara út að syngja og tralla, bara gaman af því.

Já og svona afþví þetta er firsta færsla eftir áramót GLEÐILEGT NÝTT ÁR ALLES  HEHEHEHE

Annars er allt í lukkunar velstandi. Lífið er yndislegt 

                                                                               Líf&Fjör

 


» 10 hafa sagt sína skoðun

24.12.2006 00:03:02 / támína

Tilkynning :P

Til allra þeirra sem ekki komust... eða gleymdist að setja  á jólakortalistann í ár, vil ég óska gleðinlegra jóla og farsældar á komandi ári :).

Svo er bara að krossa puttana uppá að þið gleymist ekki að ári ;)

Líf&jólafjör


» 11 hafa sagt sína skoðun

21.12.2006 20:37:58 / támína

þþþþþmuuuuuuuuuu

Long time no see!! Allt við sama heygarðshornið hér, eða...... mmmm nei. Ekki allt :haha: og það er bara æðislegt yndislegt frábærlega vúbídú skiluru. Bara gaman.

Smári Þór farinn suður í Keflavíkina. Fór í morgunn. Anna Guðbjörg fer á morgunn í Saurbæjar sveitina sína, og þá er kellan orðin ein í kotinu fram yfir jól. Eins og í fyrra. Vona það svo heitt og inniega að við verðum öll heima næstu jól. Krossa puttana fyrir því. Höfum bara verið ein jól saman, ég og krakkarnir :S . En maður getur ekki allt sem maður vill. Minns verður að vinna á öll jólin svo þetta er bara betra.

Er komið jólastress í fólkið? Hmmm. Amk ekkert stress á þessum bæ.

Fyndið að hlusta stundum á fólk.  Það eru svoooo margir búnir að vera að röfla og nöldra yfir snjó of tralli. Svo þegar snjórinn fer hviss bamm búmm. Þá fer fólk að röfla og nöldra yfir að það verði ekki snjór um jólin. OMG RAUÐ JÓL!!!  Bara fyndið :haha:

                                 Líf&Fjör á bleiku skýi skiluru


» 2 hafa sagt sína skoðun

05.12.2006 20:42:53 / támína

... og svaraðu nú!

1. Miðnafnið þitt:
2. Aldur:
3. Single or Taken:
4. Uppáhalds bíómynd:
5. Uppáhalds lag:
6. Uppáhaldshljómsveit:
7. Dirty or Clean:
8. Tattoo eða göt:
9. Þekkjumst við persónulega?
10. Hver er tilgangurinn með lífinu?:
11. Myndiru bakka mig upp í slagsmálum?:
12. Myndiru þaga yfir leyndarmáli ef það skipti mig máli?:
13. Besta minningin þín um okkur?:
14. Myndir þú gefa mér nýra?:
15. Segðu eitthvað skrýtið um þig:
16. Myndir þú hugsa um mig ef ég væri veik?:
17. Getum við hist og bakað köku?:
18. Hefuru heyrt kjaftasögu um mig nýlega?:
19. Talaru eða hefuru talað illa um mig?:
20. Finnst þér ég góð manneskja?:
21. Myndir þú keyra með mér hringinn í kringum landið?:
22. Finnst þér ég aðlaðandi?:
23. Hverju myndiru vilja breyta í mínu fari?:
24. Í hverju sefuru?:
25. Kæmiru í heimsókn af tilefnislausu, bara til að chilla?:
26. Myndir þú koma á stefnumót ef ég myndi bjóða þér?:
27. Ef ég ætti einn dag ólifaðann, hvað myndum við gera?:
28. Ætlaru að setja þetta á þína síðu svo ég geti fyllt þetta út?:

» 8 hafa sagt sína skoðun

24.11.2006 18:30:17 / támína

Gullkorn

Smári Þór kom til mín áðan, tókk utan um mig og sagði. Mamma ég elska þig svo heit að ég bara bráðna!!!  Varð að deila þessari snilld.

                                         Líf&För


» 7 hafa sagt sína skoðun

23.11.2006 20:41:48 / támína

titill

Sögur úr sveitinni jámm… Hér er svo sem ýmislegt að frétta … en samt ekkert að frétta, ef þið skilji hvað ég meina. Ég er búin að vera frekar þung í skapi undan farið, eiginlega hálf þunglynd bara.:( Búin að vera ljót og leiðinleg við alla í kringum mig .. þeas ekki haft samband við neinn og ekki neit.:$ Ennnn það er allt á uppleið.

Fórum uppá Mýrar á laugardaginn og vorum svo heppinn að heimilisfólkið þar og fylgifiskar voru á leiðinni upp í gil að renna sér á Stiga sleðum, þoturössum. Ruslapokum og vélsleðum. Við náttúrulega slóumst í hópinn. Krakkarnir skemmtu sér konunglega. Smára fannst æði að vera dregin á Stigasleða sem var bundin aftan í vélsleða … já og mér líka!! :D Anna Guðbjörg fékk vélsleða delluna held ég bara. (kannski ekki langt að sækja hana) Þvílíka fjörið hjá henni að sitja fyrir framan og kalla hraðar, hraðar mamma hraaaaðar. Ég burraði með krakkana á öðrum sleðanum aftur heim að Mýrum. Get ekki annað sagt en að það hafi verið svolítið snúið, þar sem annað gólaði hraðar mamma á meðan hitt kallaði ekki fara hratt mamma ekki hratt.

 Anna Guðbjörg var spurð að því hvað henni langaði í í jólagjöf. Það stóð ekki á svarinu. Hana langar í margar margar margar prinsessur (barbí giska ég á) og hús fyrir þær. Og margar marga marga karla, og bílskúr fyrir þá. Sú stutta hefur það alveg á hreinu að karlmenn þurfa að hafa bílskúr. :haha:

Ég spurði Smára Þór líka að því hvað hann vildi fá í afmælis eða jólagjöf. Þar á bæ kemst bara eitt að. PLAYSTATION. Hann heldur því framm að pabbi hans ætli að gefa honum svoleiðis EN ég á líka að gefa honum svoleiðis. Spurði hann hvað hann ætlaði að gera við tvær playstation tölvur. Sko ef þið gefið mér bæði svoleiðis þá bara sel ég eina! Málið dautt.:haha:

Sótti Önnu Guðbjörgu í leikskólann í gær fyrir hádegi. Hún var komin með 39,7 stiga hita litla greyið.:S Mældi hana um 4 í dag með 37,8. Sjáum hvað setur hvernig skottan verður í fyrramálið. Hnni finnst lítið spennandi að þurfa að vera innilokuð heima í marga daga.

Þannig að við mæðgur vorum heima í og nýti ég daginn í að byggja nokkur jólakort. Er eiginlega bara næstum búin með þau. Þarf að fjárfesta í smá tralli til að klára. Já og svo náttúrulega að skrifa í þau. Ég hef ákveðið að gefa bara litlar og ódýrar jólagjafir í ár. Langar svo að gera eitthvað sniðugt við barnarherbergin eftir jóla, og ef það á að ganga upp þá verða jólagjafirnar að vera litlar. Svoleiðis er nú það. Er komin með slatta af hugmyndum um hvað ég get gert í herbergjunum. Svo er bara að bíða og sjá hver árangurinn verður.8) Gott í bili.

                                                  Líf&Fjör


» 4 hafa sagt sína skoðun

07.11.2006 16:15:27 / támína

Halló

Mig langaði bara að deila því með ykkur að ég er að fara á tónleikana með Magna, Dilana, Storm og Toby. NARA NARA BÚ BÚ!!!!!!!!!!!!!!!

         Líf&Fjör


» 8 hafa sagt sína skoðun

26.10.2006 21:34:45 / támína

hammala hammala

Ég mæti loksins á kóræfingu í kvöld. Í fyrsta sinn skiluru. Get ekki annað sagt en að ef ég verð ekki með harðsperrur af hlátri á morgunn þá veit ég ekki hvað!! Bara gaman, svaka stuð, ossa fjör vúhú :D Líf&Fjör

» 3 hafa sagt sína skoðun

19.10.2006 20:43:57 / támína

mmmmmm ég er hérna enþá skiluru ... mér leiðist skiluru ...... viltu vera vinur minn skiluru?..... ég hef ekkert að segja skiluru......svo ég segi bara......

.....Líf&Fjör skiluru....:haha:

» 10 hafa sagt sína skoðun

28.09.2006 10:36:34 / támína

Ég lifi !!!

Jæja jæja, svo sem ekki mikið verið um að ske síðan síðast. En samt eitthvað. Búin að fara 2svar í göngur og réttir. Missti hálfpartin af fyrrigöngunum samt. Var svo heppin að detta af baki og hesturinn ákvað að skokka bara heim á leið. Stoppaði samt öðruhvortu til að athuga hvort ég væri ekki örugglega að elta hann. Sem betur fer eru allir með talstöðvar svo ég gat kallað á Sigga bro og auðvitað kom hann mér til bjargar :). Svo héldum við áfram og þegar ég er alveg að komast að ná að komast á réttan stað sé ég að Siggi er langt á eftir mér og er eitthvað að brasa. Slittnaði beisli hjá honum. Og eins og gömlum sveitadurgi sæmir var ég með baggaband í vasanum. Fór til baka til hans svo hann gæti reddað þessu. Svo að við rétt náðum að smala niður að rétt.  Seinni göngurnar gengu áfallalaust fyrir sig.

Svo eru búin að vera veikindi og trall... ekki spes.

Ég var eitthvað voða sibbinn í morgunn þegar ég vaknaði. Fór framúr, klæddi Önnu, smurði nesti fyrir Smára, keyrði þeim í skóla og leikskóla. Kom svo heim því ég er í fríi í dag. Fékk mér morgunnmat og svona. Var svo á leiðinni aftur út, komin í skóna og allt, þegar ég fattaði að ég var en í náttfötunum!!! Sussubíja.  Verkefni dagsins er svo að byrja að byggja slátur.... allavega sauma keppi

                                              Líf&Fjör


» 9 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 13